Draumheimar
11.10.2007 20:16:35 / toto89

Lífið er og verður barátta gegn eigin og annarra heimsku.- James Thurber

Já, það má sko með sanni segja, þar sem ég hef verið svo heimsk að hafa ekki skipt um síðu fyrir löngu. Enda hef ég ekki komist inn á þessa síðu í u.þ.b. mánuð. Alla vega ég ætla að flytja mig um set núna getið þið litið á toto89.bloggar.is

 

That's all folks!


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 19:52:12 / toto89

Þótt það kosti mikið að lifa er það eftirsóknarvet.- Kathleen Norris

Það hættir ekki að rigna! Jörðin er svo gegnsósa að það er ekki eðlilegt, eins og mamma sagði það hlaut að koma að þessu á endanum þar sem að það rigndi aldrei neitt almennilega í sumar.

Helstu haustverkin eru búin, þ.e. plöntunin og að taka upp kartöflur. Plöntunin tók fimm daga, heldur leiðinlega daga þar sem ég þurfti að bera bakkana upp bratta og langa leið.

Hins vegar var skemmtilegt að taka upp kartöflurnar, reyndar var verkið sjálft ekki mjög skemmtilegt en mamma og pabbi voru með mér að taka þær upp. Mamma kvartaði yfir því að pabbi rótaði ekki nóg í moldinni og skildi of mikið eftir af kartöflum, en pabbi glotti bara og velti fyrir sér hver átti að fá hálf grænu kartöflurnar, hann komst að þeirri niðurstöðu að Kobba móðursystir ætti að fá þær.

Skólinn byrjar á mánudaginn, það er undarlegt hve tíminn virðist stundum líða hratt en síðan á öðrum stundum virðist hann líða alveg löturhægt. Það er skrítið að hugsa til þess að vera að fara í þriðja bekk. Ég er ekki hrifin af stundatöflunni minni, ég er þrjá daga til klukkan fjögur, eins lengi og skólinn er á miðvikudögum en ég er að vísu búin á hádegi á föstudögum, ég sé reyndar fram á að þurfa að fara dálítið oft heim þar sem pabbi þarf svo oft að fara suður á fundi og eitthvað svoleiðis vesen, en það kemur í ljós. Ég virðist ætla að sleppa þokkalega út úr bókakaupum, þær bækur sem ég hefði þurft að kaupa voru sex talsins, ég sé fram á að fá tvær lánaðar, svo að ég ætti að sleppa billega.

Þegar ég sit hérna í kuldanum er mér meinilla við að hugsa um Sindra bróður liggjandi einhver staðar með tána úti í loftið á Rhodos, samt hefur hann örugglega mjög gott af þessu og ég reyni að öfunda hann ekki mikið, ég hugga mig við að ég fæ meiri pening en hann í sumar.

Freyr og Freyja koma á morgun, ég þarf að komast í búð áður en ég fer norður, ég þarf að merkja fötin mín og ég þarf að fara að pakka. Þetta  hleðst allt saman upp, ég ætla að byrja á morgun. Mér finnst leiðinlegt að pakka! 

 

That’s all folks!


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 13:20:25 / toto89

Megi þér auðnast að lifa alla þína ævi.- Jonathan Swift

Ég og mamma fórum í berjamó í fyrradag. Vorum eiginlega allan daginn, eða allur dagurinn hjá mér er frá hásegismat og fram að fjósi þ.e. til klukkan fimm. Það er nefnilega fullt af berjum upp í fjalli, bláberjum og krækiberjum. Við tíndum um 22 lítra í gær, svo að ég myndi nú ætla að það væri bara sæmilegt. Það var fínt, ég hafði heldur gaman að því, mömmu fannst svo gaman að finna svona mikið af berjum. Það var samt frekar kallt og ég gat ekki annað en öfundað Sindra sem að mamma talaði við í morgunog hann sagði að það hitinn færi varla niður fyrir 25°, á kvöldin!

Já, Sindri er sem sagt farinn til Rhodos, kemur aftur 15. sept held ég.Við eða alla vega ég erum ekki ennþá búin að fá stundatöflurnar okkar, alla vega var mín ekki komin í hádeginu. Mér finnst að við ættum að fara að fá þær, svo að ég geti skipulagt tímann í samræmi við söngnámið hjá mér.Það eru 14 dagar þangað til ég fer norður, þar sem ég kem ekki fyrr en á mánudeginum 17. mér fannst óþarfi að koma bara til að ná í stundatöfluna þegar ég gat frekar verið heima í réttum.

En talandi um réttir og kindur, við fengum megnið af kindunum okkar í fyrradag, þar sem Gutti getur ekki verið heima á smaladaginn sem er á sunnudaginn eða laugardaginn í næstu viku, held ég. Þá ákvað hann að smala í fyrradag , sem við pabbi erum algerlega sammála um að sé óþolandi, þ.e. að geta ekki smalað daginn sem á að smala. En alla vega þá var ég að slást við kindur, þær fóru nú ekkert of vel með mig, ég er öll út í marblettum á fótunum.Jæja, þetta er komið núna. 

 

That’s all folks!


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.08.2007 19:13:04 / toto89

Líf hvers manns fær lit af ímyndunarafli hans.- Markús Árelíus

Í spilarnum er Mannabarn eða Human child, nýasti diskur hennar Eivør Pálsdóttur. Mamma og pabbi keyptu hann handa mér þegar þau komu frá Ítalíu. Hann olli mér sko alls ekki vonbrigðum og er góður á allan hátt, sérstaklega fannst mér gaman að mamma fékk útgáfuna sem er bæði með færeysku og enska disknum. Persónulega finnst mér færeyska útgáfan betri.

Þrjú lög finnst mér standa upp úr, upphafslagið Mannabarn, síðan Trees in the Wind og loks Mercy of Darkness en þetta eru allt góð lög á þessum disk.Já, mamma og pabbi eru sem sagt komin heim, mér fannst svo sem ágætt að við værum ein heima, ég vil nefnilega meina að pabbi séu oft alltof strekktur og finnst að allt hefði helst átt að gerast í gær.

Persónulega er ég mikið afslappaðari og Sindri líka en þó komum við öllu í verk sem átti að gera svo að það er ekki beint hægt að kvarta.Það eru 20 dagar þangað til skólinn er settur, merkilegt  hvað þetta sumar hefur verið fljótt að líða, ég hugsa að allir hafi haft nóg að gera. Maður varð ekkert mikið var við fólk sem maður þekkti, ekki nema von þar sem maður er hérna úr alfaraleið.

Við sjáumst öll bráðum, hugsa að ég bloggi samt aðeins áður en ég fer norður ekki það að ég sé neitt mjög dugleg við þetta. 

 

That’s all folks!


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 22:02:31 / toto89

Það er öllum frjálst að gefa lífi sínu lit.- Frithiof Brandt

Það rigndi í dag!

Ég er persónulega ekki mikið fyrir rigningu en það var nú kominn tími til, flest túnin eru eitthvað brunnin og sum heldur illa. Ekki hefur vantað dagana til þess að heyja, en hins vegar má þræta um hvort það hefur vantað gras til að slá. Alla vega hérna um slóðir. Ég veit að ég hlýt að hafa lítið að segja fyrst að ég tala um veðrið.Mamma og pabbi eru á Ítalíu sem stendur og ég stjórna hérna heima fyrir, svona að mestu alla vega. Mér finnst samt skrýtið að fara alla leiðina til Ítalíu til að labba, allt í lagi það er kannski gaman að labba eitthvað þar og skoða sig um en ég vildi líka fá að gera eitthvað meira en bara það. Þau koma heim á laugardagskvöldið, eru samt ekki viss um hvort þau ætli að koma heim um kvöldið eða um sunnudagsmorguninn, annars er pabbi svo stressaður yfir öllu að ég get alveg eins búist við að þau komi um kvöldið.

Skólinn byrjar að öllum líkindum helgina sem að réttirnar eru, þar sem að skólinn er settur á sunnudegi og á mánudegi þá eigum við bara að mæta til að hitta umsjónakennarann okkar og fá stundaskrá, þá er vel hugsanlegt að ég komi ekki fyrr en á mánudaginn svona um miðjan dag, það eru nefnilega tvö ár síðan ég komst í réttir síðast. Samt erum við ekkert viss um þetta, Freyr bróðir hringdi í dag og var að spyrja um réttirnar og varð að segja honum að ég hefði ekki hugmynd um allt saman.

Annars er lítið um að vera, Kristín ætlar kannski að kíkja á mig á leiðinni norður fyrir útskriftarferðina sína, ég vona að hún hafi tíma. Jæja... 

 

That’s all folks!


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.08.2007 19:36:32 / toto89

Þú nýtur ekki sólskinsins ef þú óttast stöðugt að það fari að rigna.- Morris West

Ég var að koma að sunnan í dag, þetta var góð ferð, keypti fullt af dóti. Það er svo sem ágætt og flest af því var eitthvað sem ég hafði þurft að endurnýja þannig að ég kom ekkert illa útúr þssu. Annars segir Steinunn systir að ég sé nísk og að ég eigi alveg nóg af peningi til þess að kaupa bara það sem ég vil pffftttt... ef ég keypti allt sem mig langar í þá ætti ég engan pening.

Það er u.þ.b. mánuður þangað til við eigum að skólinn byrjar aftur, sem er pínu fyndið því að þegar ég talaði við frænku mína sem er jafn gömul mér þá sagði hún mér að MH byrjar 22. ágúst, henni fannst ég leiðinleg að byrja svona seint í skólanum ojæja.Samt hefur mér fundist sumarið ekkert mjög stutt, tíminn hefur eiginlega bara flogið áfram enda er alltaf nóg að gera hérna heima.

En samt, sumarið er bráðum á enda runnið, sem þýðir að það fer að líða að afmælinu mínu, þeim merkisdegi þegar ég verð 18 ára gömul, ekki að það skipti mig í rauninni miklu máli.

Mamma og pabbi eru að fara til í Ítalíu á laugardagsmorguninn, þannig að ég verð að stjórna búinu, Sindri gæti ekki stjórnað hann verður alltaf svo latur þegar það er enginn að líta eftir honum. Þau koma ekki til baka fyrr en sunndaginn 26. ágúst svo að maður verður bara lengi hérna einn heima eftirlitslaus, ekki að það þurfi svo sem að líta eftir okkur þó að við séum ein heima, þó svo að pabbi haldi annað.

Jæja, ég ætla að fara að ganga frá dótinu mínu. 

 

That’s all folks!


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.08.2007 19:17:40 / toto89

Markmið er tímabundinn draumur.- Ók. höfundur

Ég gafst upp á þeim áformum mínum að fara ekki í klippingu fyrr en í haust meðan við pabbi vorum að mála um daginn og fór í klippingu í morgun. Að vísu hafði Sindri verið svo elskulegur að benda mér á það væri góð rakvél inni á baði, hugmyndin var freistandi í smá stund, en svo komst ég að þeirri niðurstöðu að ég myndi líta kjánalega út  snoðuð.

Ég er ekki enn búin með Harry Potter svo ekki skrifa neitt um bókina á síðuna, ekki taka þetta til þín Kristjana;)

Verslunarmannahelgin mun líða hjá viðburðalaus að mestu, alla vega fyrir mig þar sem ég er ein af þessum óvenjulegu ungmennum sem fer ekki neitt þessa helgi heldur er heima og er að vinna, meira segja bara nokkuð ánægð með það. Maður lendir ekki í þungri umferð og leiðindum þegar maður er heima, að vísu væri ég alveg til í að skreppa norður eða bara suður meðan flestir eru ekki í bænum.

Ég sakna Akureyrar en ég veit að þegar ég verð komin þangað, þá mun ég sakna þess að vera heima svo að þetta er viss hringur sem ég fer alltaf í hérna, en ég sakna þess að vera á vistinni ( að vísu sakna ég ekki matarins), það að hafa flesta vini mína svo nálægt mér að það tekur mig nokkrar mínútur að komast til þeirra. En ég þarf ekki að hafa áhyggjur, skólinn byrjar aftur eftir einn og hálfan mánuð og tíminn er svo sannarlega fljótur að líða. Til dæmis verð ég 18 ára eftir 3 mánuði og 4 daga.

Ég er farin að lesa. 

 

That’s all folks!


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.07.2007 22:18:57 / toto89

Lífið er og verður barátta gegn eigin og annarra heimsku.- James Thurber

Sindri er lengi að lesa Harry Potter, ég er að ganga af göflunum!

Annars er allt ágætt hérna, ég er ávallt að vinna, alltaf nóg að gera eins og pabbi segir. Mér líður ágætlega, ég er ekki viss um að ég vilji að sumarfríið sé að fara að enda bráðum, bara einn og hálfur mánuður eftir.

Ég var að klára bók sem heitir í Upphafi var morðið og er eftir Árna Þórarinsson og Pál Kristin Pálsson. Ágæt bók, glæpasaga eins og nafnið gefur til kynna. Mér fannst hún frumleg, er einhver sem hefur lesið hana?Mig langar suður, fer bráðum vonandi.

Mamma átti afmæli um daginn, stór afmæli hún er orðin 50 ára, pabbi er búin að vera að gefa henni gull á þjóðbúning í afmælisgjöf undanfarið ár. Mig langar í þjóðbúning verst hvað þetta er allt saman dýrt, gullið um 250 þúsund, svo á eftir að sauma búninginn, reyndar fékk mamma allt, svona svuntukrækjur úr gulli húfuprjón og svoleiðis sem að maður getur í rauninni sankað að sér smám saman og þarf ekki í upphafi. Markmiðið hjá mér er að vera komin með þjóðbúning fyrir útskriftina ekki fyrir árshátíðina, ég get fengið lánaðann búning hjá ömmu, en mig langar að vera í upphlutnum mínum á útskriftinni minni.  Mamma og pabbi ætla að gefa mér eitthvað svo á ég náttúrulega svolítinn pening sem ég get notað. Spurningin er hvort vil ég silfur eða gull, álit?

Hef ekkert meira að segja í bili. 

 

That’s all folks!


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.07.2007 19:59:57 / toto89

Berðu framar öllu virðingu fyrir sjálfum þér.- Pýþagóras

Mér til mikillar skelfingar hef ég uppgötvað að litla systir mín er íhaldssöm, úr hófi. Tvö atvik hafa fullvissað mig.

Ég var að baka eplaköku fyrir mömmu og hún fór aðeins úrskeiðis, mamma hafði skrifað ger í staðinn fyrir lyftiduft í uppskriftina, hvenig átti ég að átta mig á því. Jæja, alla vega þá var þetta svo sem ágætis kaka, allir sögðu að hún væri góð. En þegar ég bar hana á borð kom vandlætingarsvipur á Jórunni og hún sagði „Þetta er ekki eins og mamma gerir eplaköku, næst á hún að baka hana ekki þú!” Þetta fannst mér nú hálf undarlegt en hugsaði ekki meira um það þ.e. ekki fyrr en nokkrum dögum seinna. Ég, mamma, pabbi og Jórunn keyrðum fram hjá Þormóðsholti þar sem stór bílakirkjugarður er staðsettur. Við sáum vörubíl og mamma hafði orð á því hvort að það ætti kannski að fara að fjarlægja einhverja bíla. Þá heyrðust hávær mótmæli frá Jórunni, um að það mætti ekki, ég innti hana að ástæðu „Hann hefur alltaf verið þarna!” Mér féllust hálfvegis hendur en reyndi að útskýra fyrir henni að bílarnir væru ekki bara sjónmengandi heldur væru líka að menga umhverfið þarna í kring með olíu og ógeði en hún tók engum rökum. Bílakirkjugarðurinn átti að vera þarna af því að hann hafði alltaf verið þarna. Ég trúi ekki að þetta hafi verið systir mín sem sagði þetta.

En út í allta aðra sálma, Fríða og Dýrið er fallegt ævintýri, ég var að horfa á teiknimyndina núna um daginn, boðskapur hennar er einnig góður þ.e. að útlitið getur blekkt og að maður getur sigrast á hræðslu sinni við það sem er öðruvísi. Auðvitað er boðskapur líka að ástin sigrar allt eða einhver svoleiðis klisja, en mér finnst hitt betra! Gestur, eða Gaston er næst ógeðslegasti vondi kall sem ég veit um í teiknimynd hann er á eftir Frolló í Hringjaranum í Notredam. Hann er sagði á einum tímapunkti um Fríðu „Hún er fallegasta stúlkan í bænum og þar með sú besta!” Ég verð að viðurkenna að reiðin gaus upp í mér við þessi orð.

En er það ekki oft sem að fólk hugsar eitthvað á þessa leið, förum við ekki ótrúlega mikið eftir útliti fólks? Við viljum öll geta sagt að útlitið skipti ekki máli en meinar fólk það í alvöru? Myndum við geta verið með manneskju sem að okkur finnst virkilega fráhrindandi? Sem betur fer er fólk með mismunandi smekk um hvað er fallegt og hvað ekki! Jæja það er komið nóg af þessu! 

 

That’s all folks!


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.07.2007 21:17:39 / toto89

Erfiðleikar lífsins eru fólgnir í því að velja og hafna.- George Moore

Ég held að fólk almennt vokenni sjálfu sér of mikið, bara allir. Svo fáum við stundum áminningu um það að við höfum það alls ekki svo slæmt. Maður kannski kvartar yfir að þurfa að labba langa leið en núna áðan sá ég mann sem fæddist án fóta og gat engu að síður unnið fullfrískan dreng, efnilegan hlaupara í 100 m hlaupi, auðvitað með gervifætur en samt þetta fær mann til að velta hlutunum öðruvísi fyrir sér. En þar sem  mannfólkið er eigingjarnt og hugsar aðeins um sinn eiginn rass þá gleymum við þessu óðar aftur. Það er gott að fá áminningar af og til.

Heyskapurinn hjá okkur er búin, við erum samt örugglega einna fyrst til að klára þar sem það virðist ekki vera almennilega mikið gras á flestum öðrum túnum hér í kring. Við Sindri erum að hugsa um að skreppa einn dag á Strandir í vikunni, þ.e. á Hólmavík, Sindri segist vera orðinn þreyttur á vælinu í mér að enginn vildi fara með mér á Galdrasafnið, en hann sleppur ekki næst skal ég bara væla um að enginn fari með mig á Draugasetrið. En hérna var ég fyrir ofan að tala um að fólk vorkenndi sér of mikið og fer síðan að tala um vælið í mér, smá andstæður. O, jæja!

Börn eru sæt þegar þau eru lítil, svo þegar þau stækka og eru um 8-14 þá kemur ýmislegt uppúr krafsinu sem er ekki alltaf svo sætt. Ég útskýri þetta ekki meira.

Í dag fékk ég sent bréf frá Gallup þar sem að þeir voru að biðja mig og restina af familien að ganga um með einhvern Fjölmiðlamæli, sem að greinir hvað við horfum á í sjónvarpinu og hlustum á í útvarpinu, ef við gerum þetta þá fáum við punkta og getum keypt okkur eitthvað töff dót í netverslun þeirra, en við heppin. Þetta er sem sagt allt mömmu að kenna, hún tók þátt í einhverri könnun um daginn svo að þeir ákváðu að senda okkur þetta pfffttt... Annars segir mamma að við ættum að taka þátt í þessu, ganga um með eitthvað skrýtið lítið tæki á okkur allan daginn ég veit ekki mér er svo sem sama. Já annars í framhaldi af því ef þið viljið tala við mig, þá er áhrifaríkara að hringja í heimasímann. 

 

That’s all folks!


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.06.2007 16:50:09 / toto89

Það er engin auðlegð til nema lífið.

Vegna mikils andleysis í sambandi við titla á þessum bloggum hef ég ákveðið að nota tilvitnanir úr bók sem  heitir Nokkur orð um listina að lifa, ég held að ég hafi fengið hana í fermingargjöf, þetta er frekar sniðug bók. Þannig að núna fáið þið alltaf svona gullkorn með hverju bloggi. Frasinn í dag var eftir John Ruskin.

Jæja, þá erum við að  búin að koma niður þessum bölv... ég meina yndislegu plöntum niður þarna uppi í fjalli, sem er gott mér verður alltaf svo illt í hælunum af þessu. Við vorum bara uppi í fjalli áðan að klára þetta.

Ég er að lesa þjóðsögur úr safninu pabba núna frekar skemmtilegar sögur. Þeim var safnað saman af Torfhildi Hólm, ég hef nú ekki rekist á margar bækur af þjóðsögum sem hafa verið safnað saman af konum.

Mig langar svolítið suður núna, helst til að versla, ég er samt að hugsa um að bíða með það þar til sumarútsölurnar byrja sem er held ég einhver tímann í ágúst. Svo líklega verður það bara svoleiðis.

Jæja, ætli það verði nokkuð meira að þessu sinni!

 

That’s all folks!


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.06.2007 19:36:27 / toto89

Allt líf okkar virðist leikur.

Fyrirsögnin er spakmæli um listina að lifa, bara svona að koma því fram.

Það gerist nú ekki mikið þessa dagana, enginn hringir og ég hef ekki tíma til þess að hringja í neinn, ég verð líklega að láta mér nægja félagskap Sindra, svona þangað til fer að hægja um, svo er ég reyndar bara búin að vera heima í u.þ.b. tvær vikur, ekki beint mikið en mér finnst ég búin að vera hérna miklu lengur.

Það skortir nú heldur ekki verkefnin hérna heima heyskapurinn byrjaði í gær og svo eru það náttúrulega þessar indælu plöntur sem þarf að koma niður, verst er að þær komi sér ekki þangað bara sjálfar. Svo er ég í húshjálpinni eins og í fyrra, sem er náttúrulega bara skemmtilegt, Gísli ætlar að fara með mér að skjóta bráðum það er frábært.Veðrið er búið að vera gott undanfarið, ekki vantar það, helsta vandamálið er að það er ekkert búið að rigna undanfarið og það ríkur svo mikið úr afleggjaranumað bíllinn minn er ferlega skítugur og það þjónar eiginlega engum tilgangi að þvo hann því að hann yrði eins skítugur um leið.

Ég hef lítið að lesa er reyndar búin að vera svo upptekin og haft svo mikið að gera að ég er ekki ennþá búin með ljóðasafn Davíðs, en það er á listanum ásamt því að lesa Hringadróttinssögu aftur. Jæja það er best að hætta þessu. 

 

That’s all folks!


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.06.2007 20:54:23 / toto89

Sæl aftur!

Já, ég er að hugsa um að byrja að skrifa hérna aftur. Já, fékk allt í einu löngun til þess að skrifa, er svo sem búin að vera að bræða með mér í u.þ.b. mánuð hvort ég ætti að byrja aftur að skrifa.

Alla vega seinni önnin er búin, allar einkunnir komnar í hús og ég stóð mig bara nokkuð vel. hins vegar er Sindri ennþá fyrir norðan. Svo ég var bara að byrja að vinna í dag. Núna þegar það er komið kvöld þá vildi ég að ég hefði einhvern til þess að nudda á mér fæturna, er hálf þreytt eftir að hafa tölt á eftir slátturvélinni í allan dag.

Ég er svona að reyna að halda uppi orðspori mínu um að vera menningarleg, þess vegna ákvað ég að ljúka því ætlunarverki mínu að lesa kvæðasafn Davíðs Stefánssonar sem ég eignaðist seint síðasta sumar, var reyndar búin að lesa það yfir lauslega áður. Það kemur reyndar ekkert óvart að það sem ég komst að er að Davíð Stefánsson hefur verið einhver mesti snillingur sem að Ísland hefur af sér alið. Hingað til hafði Nirfillinn verið uppáhaldsljóðið mitt eftir hann en það er í endurskoðun. Veit ekki einu sinni hvort ég get gert upp á milli ljóðanna lengur.

Þótt ég sé bara ný komin heim þá verð ég að játa að ég sakna krakkanna svolítið, suma á ég ekki eftir að sjá mikið oftar þar sem það eru svo margir sem ég þekki á 4. ári. Auk þess er fólk farið að tínast burt, sumir eru að skipta um skóla og aðrir að fara sem skiptinemar og svoleiðis. Mér finnst það bara ekkert svakalega sniðugt þegar fólk gerir svoleiðis. Jæja, það verður svo sem nóg af þeim eftir til að halda mér við efnið.Ég hugsa að þeta sé komið í bili, heyri í ykkur seinna. 

 

That’s all folks!


» 5 hafa sagt sína skoðun

31.01.2007 20:11:12 / toto89

Skóli!

Jæja, þá er maður aftur komin norður og allt er búið að ganga fínt hjá mér. Prófinn gengu mjög vel, enda var svolítið álag á þessum dögum en það borgaði sig og ég fékk mjög góðar einkunnir, ætla svo sem ekkert að útlista þær hérna en það var mikið af níum.

Ég skrapp til Reykjavíkur í vetrarfríinu, gaman að því hitti Steinunni auðvitað, ömmu, Frey og fjölskyldu og Jóa. Þetta var mjög gaman ég fór í leikhús, gekk upp laugaveginn í hellirigningu ég var með regnhlíf úr Tiger sem var alveg einstaklega ljót á litinn en það er náttúrulega ekki málið hún virkaði alveg eins og regnhlífar eiga að virka. Verslaði ágætt magn af dóti hefði reyndar svo sem viljað versla meira. Reyndar fór ég í búðir í dag með Kristjönu og keypti mér svolítið af dóti sem var fínt.

Stundataflan mín er eiginlega frekar leiðinleg og ljót en ég sætti mig svo alveg við hana enda þýðir nú bara ekkert að væla. Ég er samt þrjá daga til kl. 16.00 og aldrei bara til hádegis. En ég er nú hérna til þess að vera í skóla ekki satt. Ég þarf að kaupa mér svolítið af bókum sem eru margar hverjar frekar dýrar en ég lifi svo sem, margir myndu segja að ég ætti ekkert að vera að kvarta því að ég eigi nóa af peningum sem er svo eitthvað til í en mér finnst samt mjög dýrt þegar bók kostar um 5000 fyrir fátæka námsmenn. En ojæja, þetta á nú ekki að vera neitt sérlega langt blogg kannski kemur eitthvað lengra bráðum!

That's all folks!


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.01.2007 15:32:53 / toto89

Próf

Ég er að fara að byrja í prófum sem er nú ekkert sérlega sérstakt skal ég segja ykkur. Þess vegna hef ég hugsað mér að blogga eiginlega ekki neitt þangað til í fríinu sem er þegar ég er búin með prófin það verður sem sagt ekki fyrr en 23. janúar. Þannig að ég hef þetta stutt núna er að fara að læra hvort eð er.

Gangi öllum vel!

That's all folks!


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7